Æfing fellur niður fimmtudaginn 31. mars
30.3.2011 | 22:38
Engin æfing verður á fimmtudaginn í Boganum vegna leiks í Lengjubikarnum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Opnun inniaðstöðu - opið hús
29.3.2011 | 14:20
á föstudaginn 1. apríl verður nýja inniaðstaðan okkar opnuð og er
það kærkomin viðbót við það sem verið hefur. Í tilefni þess ætlar
Óli þjálfari að vera með opið hús fyrir börn og unglinga á
laugadaginn 2. apríl kl. 10-12. Þá verður einnig kynnt ný
æfingatafla en hún breytist núna með tilkomu stærra svæðis.
Fyrir þá sem ekki komast á laugardaginn verður taflan svo sett inn
hér.
Ath. það þurfa allir að fara úr skónum uppi og því er gott að taka
með sér innanhússíþróttaskó !
kv. unglingaráð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetrarfrí
6.3.2011 | 22:23
Við ætlum að taka vetrarfrí frá æfingum frá Öskudegi:
9. mars og til mánudags 14. mars
Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 15. mars
Þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Óli er mættur
23.2.2011 | 12:43
'oli er orðinn frískur og æfingar hafnar á fullu :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óli þjálfari veikur
16.2.2011 | 20:17
'oli þjálfari er veikur og ekki hægt að reikna með
æfingum fyrr en um helgina. Fylgist með hér á
síðunni hann lætur vita áður en hann mætir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endurskoðað æfingaplan
15.2.2011 | 22:03
Æfingatafla, inniaðstaða 2011 febrúar - ?
Tími | mán | þri | mið | fim | fös | lau |
14:00-15:00 | Hópur 3 | |||||
15:00-16:00 |
| Hópur 9 |
| Hópur 4 |
|
|
16:00-17:00 | Hópur 5 | Hópur 6 | Hópur 8 |
|
Hópur 2 kl:11:00-12:00 | |
17:15-18:15 |
| Hópur 10 | hópur 7 | Hópur 11 |
|
Hópur 12 kl: 12:15-13:15 |
18:15-19:15 |
|
| Hópur 1 |
|
|
|
19:00-20:00 |
|
|
|
|
|
|
20:00-21:00 |
| Boginn/ unglingakennsla |
|
|
| |
21:00-22:00 |
|
|
| Boginn/almennur- tími |
|
|
22:00-23:00 |
|
| Boginn/meistaraflokks- kylfingar |
|
|
|
Æfingatafla þessi mun taka gildi fimmtudaginn 10 febrúar. Æfingar fara fram í aðstöðu okkar í Þrekhöllinni ef fleiri óska eftir því
að æfa þá verður bætt við tímum. Ef einhverjir eru ekki skráðir í hópa þá geta þeir haft samband, annaðhvort í síma 8449001 eða
þá sent línu á netfangið oligolf@simnet.is. Æfingatafla þessi mun gilda þangað til við opnum púttaðstöðuna niðri í gömlu
vaxtarræktinni, þá verða hóparnir stækkaðir og aukið við fjölda æfinga. Þið sjáið svo hópaskiptinguna hér að neðan.
Með kveðju Ólafur Gylfason golfkennarinn ykkar.
Hópur 1. | Hópur 2. | Hópur 3. | Hópur 4. | Hópur 5. | Hópur 6. |
Crispin Tinni Hafþór Sveinsson Ásgeir Tumi Magnús Björnsson | Tumi Hrafn Ævarr Freyr Víðir Steinar Kjartan Atli | Fannar Már Jón Heiðar Viktor Ingi Sævar Helgi
| Kristján Benedikt Aðalsteinn Leifsson Stefán Einar | Magni Þrastarson Mikael Kristján Rúnar
| Þórhallur Óli Björn Sigmundsson Dagur Brimar Jörvi |
Hópur 7. | Hópur 8. | Hópur 9. | Hópur 10. | Hópur 11. | Hópur 12. |
Halldór Heiðberg Jóhannes Stefánsson Erik Snær Egill Friðjónsson | Starkaður Sigurðars Örnólfur Hrafn Gabríel Sólon Kolbeinn Finnsson | Stefanía Elsa Guðrún Karítas Óskar Jóel Eyþór Hrafnar
| Ólöf Marín Sigrún Kjartansdóttir Andrea Ýr Jana Þórey | Erla Guðrún Bára Alexandersdóttir Stefanía Daney Indíra Jónasdóttir
| Gunnar Sigurðsson Daníel Hafsteinsson Bjarni Aðalsteinsson Lárus Antonsson |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Inniaðstaðan okkar
31.1.2011 | 09:39
Ágætu golffélagar
Fréttir af inniaðstöðu í kjallara íþróttahallar.
Þegar farið var af stað með hugmyndavinnu um nýtingu kjallarans fyrir GA og Skotfélagið kom í ljós að endurnýja þyrfti brunahönnun rýmisins og fá hana samþykkta hjá byggingareftirlitinu. Segja má að þessi þáttur hafi komið svolítið aftan að okkur og valdið því að GA og Skotfélagið hafa ekki getað hafið vinnu við framkvæmdir aðrar en að rífa niður og henda út því sem ekki á að nota.
Brunahönnun þarf að fara í gegnum visst ferli hjá bænum og lofað var að það yrði klárað í janúar. Samþykki fyrir brunahönnun kom svo núna 20. janúar og í framhaldi af því voru sendar inn teikningar til byggingafulltrúa sem verða teknar fyrir á næsta fundi hjá þeim, þegar því ferli er lokið verður gefið út byggingarleyfi, þá tekur við verkferli af hálfu bæjarins um að klára vissar framkvæmdir sem lúta að þeim og í framhaldinu er hægt að hefja uppbyggingu á fullu.
Hingað til hefur bærinn verið að endurnýja lagnir í lagnakjallara og við að rífa niður það sem ekki stóð til að nota og nú verður farið af krafti í að taka niður nokkra létta veggi og mála. Það er ekki hægt að lofa hvenær endanlegum frágangi verður lokið en lagt verður kapp á að klára þetta sem fyrst.
Hvað varðar aðstöðu okkar í dag þá er hún ekki alslæm. Í Þrekhöllinni höfum við 3 mottur uppi þar sem hægt er að slá í net. Einnig er hægt að setja upp púttrenning þar sem hægt er að æfa strokuna en ekki eru til staðar holur enn sem komið er.
Við höfum 18 holu golfhermi þar sem hver og einn kylfingur getur pantað sér tíma. Ennfremur er í herminum æfingasvæði sem hægt er að bóka sér tíma í.
Ekki má gleyma aðstöðunni í Boganum, en við höfum 3 tíma þar á viku, 2 fyrir börn/unglinga og almenna kylfinga og auk þess einn fyrir afrekshópinn. Held að við getum fullyrt það að það er enginn annar golfklúbbur á landinu með þannig aðstöðu fyrir börn og unglinga í sínum klúbbum.
Eins og staðan er í dag er ljóst að það mun taka tíma að klára aðstöðuna okkar endanlega. Það er hins vegar ósk okkar að kylfingar í GA taki viljann fyrir verkið og sjái björtu hliðarnar á því sem þó er til staðar enn sem komið er og noti sér þá aðstöðu sem er tilbúin í dag. Vonandi getum við svo opnað nýtt púttsvæði og klárað inniaðstöðuna okkar eins og við viljum hafa hana sem fyrst.
Kennarinn okkar hann Óli fór í smá sumarfrí og kemur heim 3. febrúar og þá verður búið að setja upp æfingaplan fyrir litla hópa sem hann kallar á til æfinga.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skilaboð frá Óla
26.1.2011 | 11:54
Óli kemur heim 3. febrúar
Þá verður hann tilbúinn með litla hópa sem hann kallar svo á
æfingar í inniaðstöðunni okkar. Hvetjum ykkur til að nýta
ykkur tímana í Boganum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fundarboð
15.1.2011 | 09:36
Fundarboð til foreldra og forráðarmanna barna og unglinga í GA
Fundarefni eru æfingar barna og unglinga sem hafa hug á því að æfa veturinn 2011. Eins og foreldrum er kunnugt um hefur aðstaða GA ekki opnað í vetur í þeirri mynd sem áætlað var.
Boðum við því til þessa fundar með ykkur:
- Miðvikudaginn 19. janúar kl 18:30
Við viljum fara yfir stöðu mála með ykkur og Óli mun gera grein fyrir því hvernig æfingum og aðstöðu verður háttað fyrst um sinn.
Ekki hefur náðst að gera aðstöðuna klára fyrir börnin ykkar
Við viljum biðja ykkur að hafa klárt hvaða tímar dags henta ykkar börnum þá mun Óli fara yfir þau mál og setja upp æfingar sem hentar þeim þar til aðstaðan verður klár, þá mun koma tímatafla þar til við færum okkur út aftur.
Athugið það er mjög mikilvægt að foreldri mæti fyrir barnið sitt þannig að hægt sé að koma þessum málum á hreint og byrja æfingar sem fyrst.
Okkur þykir þetta miður og höfum lagt okkur fram við að reyna að þrýsta á að umbætur verði gerðar eins fljótt og unnt verði þannig að iðkendur komist inn í nýja og betri aðstöðu til að æfa sig.
Unglingaráð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æfingar í Boganum
3.1.2011 | 13:37
Æfingar í Boganum hefjast aftur 4. janúar
Óli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)