Hvernig byrja ég að æfa golf?

Hægt er að mæta á æfingatíma (skoða æfingatöflu) og fá að prófa golf. Til að skrá barn/ungling í klúbbinn þarf svo að hafa samband við framkvæmdarstjóra klúbbsins Höllu Sif. Hægt er að ná í hana eftir eftirfarnandi leiðum: 

halla@gagolf.is, gsm 896-6814, síminn að Jaðri 462-2974.

Æfingar yfir vetrartímann eru í Golfhöllinni (kjallara Íþróttahallarinnar, gengið inn að austanverðu), yfir sumartímann upp að Jaðri.

Ekki þarf að eiga kylfur eða golfsett fyrstu vikuna eða mánuðinn þegar byrjað er að æfa golf. Við hjá GA eigum nokkuð af settum og kylfum til að lána byrjendum.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband